Reykjavík, Capital Region, Iceland |
Samtökin Orca Guardians telja að háhyrningur sem rak á land við Heydalsá á Ströndum sé háhyrningur sem samtökin sáu síðast úti fyrir Grundarfirði í janúar 2016. Samtökin halda úti ljósmyndasafni með yfir 400 háhyrningum við Íslandsstrendur til að þekkja þá í sundur og fylgjast með ferðum þeirra, samsetningu hópa, fæðuvali og stofnstærð.